Skráningarfrestur á World Travel Market 2009
Skráningarferstur vegna World Travel Market ferðasýningarinnar í London hefur verið framlengdur til 30. ágúst 2009. Ferðaþjónustuaðilum býðst að fá aðstöðu í bás Íslands gegn föstu gjaldi. Enn er eru nokkur borð laus en "cauters" eru uppseldir.
World Travel Market er ein stærsta ferðasýning í heimi og haldin árlega. Að þessu sinni fer hún fram dagana 9.-12. nóvember og er í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár. Sýningin er opin 4 daga fyrir ferðaþjónustuaðila (trade) en af þeim eru 2 síðustu dagarnir einnig fyrir almenning, þá sérstaklega síðasti dagurinn. Ferðamálastofa sér um að útbúa básinn og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína en síðan er undir hverjum og einum komið að nýta tækifærið sem best.
Skráningu lýkur 30. ágúst
Hér fyrir neðan er tengill á eyðublað til skráningar í íslenska sýningarbásinn á World Travel Market 2009 en vakin er athygli á því að skráningu lýkur 30. ágúst næstkomandi. Einnig er tengill á heimasíðu sýningarinnar.
- Skráning á WTM 2009 (PDF-skjal)
- Heimasíða sýningarinnar
Nánari upplýsingar um sýningar í Bretlandi veitir Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, markaðsfulltrúi, siggagroa@icetourist.is Sími: 535 5500