Skýrsla um þróun gistingar á Vestfjörðum
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur gefið út skýrslu sem ber heitið ?Þróun ferðamanna á Vestfjörðum?. Skýrslan er unnin upp úr gistináttatölum Hagstofu Íslands og miðast við þróun gistingar frá árinu 2002-2007.
Í skýrslunni er farið yfir þróunina á landinu öllu, Vestfirðir skoðaðir í heildina og bornir saman við þróunina á landsvísu og svo er hvert svæði fyrir sig á Vestfjörðum skoðað ítarlega. Í skýrslunni kemur m.a í ljós að meðal aukning í gistingu ferðamanna á Vestfjörðum hefur verið um 8% á ári undanfarin 5 ár en á milli áranna 2006 og 2007 var 13,7% aukning. Mesta aukningin er á erlendum ferðamönnum og er bilið milli innlendra og erlendra ferðamanna stöðugt að minnka og ef tekið er mið af þróuninni undanfarin ár þá verða erlendir ferðamenn á Vestfjörðum orðnir í meirihluta árið 2010. Þá kemur einnig fram að á milli áranna 2006 og 2007 voru það einungis 3 landsvæði sem juku markaðhlutdeild sína í gistinóttum en það voru Höfuðborgarsvæðið, Vesturland og Vestfirðir. Þrátt fyrir þessa aukningu var markaðshlutdeild Vestfjarða einungis 3%. Höfundur skýrslunnar er Ásgerður Þorleifsdóttir.
- Skoða skýrsluna Þróun ferðamanna á Vestfjörðum (PDF)