Skýrslur með niðurstöðum landamærarannsóknar 2019
Tvær skýrslur hafa verið gefnar út á vegum Ferðamálastofu sem byggja á niðurstöðum úr könnun Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna árið 2019. Annars vegar er um að ræða heildarsamantekt á svörum ferðamanna og hins vegar frekari greiningu á svörum við opnum spurningum könnunarinnar.
Heildarsamantekt könnunarinnar
Í viðamikilli skýrslu sem hefur að geyma heildarsamantekt má sjá yfirlit yfir meginiðurstöður úr langflestum spurningum sem voru lagðar fyrir ferðamenn á árinu 2019, þ.m.t. spurningar í tengslum við aðdragandann að ferð, dvalarlengd, ferðahegðun, upplifun og viðhorf til einstakra þátta ferðaþjónustunnar. Í skýrslunni eru niðurstöður settar fram með myndrænum hætti og í töflum þar sem finna má svör eftir helstu þjóðernum og markaðssvæðum, auk þess sem tenging er einn á töflur þar sem finna má niðurstöður eftir fleiri bakgrunnsbreytum. Sambærileg skýrsla kom út á síðasta ári sem byggir á niðurstöðum þeirra sem heimsóttu landið árið 2018. Niðurstöður úr könnuninni hafa verið birtar með margvíslegum hætti s.s. í Mælaborði ferðaþjónustunnar og mánaðarlegu samantektinni ,,Ferðaþjónustan í tölum“. Auk þess má nefna að niðurstöður könnunarinnar eru grunnur að mati á útgjöldum ferðamanna hjá Hagstofunni.
Greining á svörum við opnum spurningum
Frekari greining á svörum við opnum spurningum í könnuninni 2019 hefur að markmiði að varpa ljósi á sköpun einstakrar upplifunar hjá ferðamönnum. Svörin voru greind með hliðsjón af eftirfarandi spurningum:
- ,,Hvernig stuðla náttúra, menning og afþreying að upplifun ferðamanna"?
- ,,Hvernig getur íslensk ferðaþjónusta bætt upplifun ferðamanna með tilliti til fagmennsku, gæða og öryggis“?
Sambærileg skýrsla kom út á síðasta ári sem byggir á niðurstöðum þeirra ferðamanna sem heimsóttu landið árið 2018. Í skýrslunni má sjá samhliða niðurstöðum greiningarinnar vísun í fjölmargar beinar tilvitnanir í ummæli þeirra ferðamanna sem svöruðu könnuninni.
Mynd: Joshua Earle á Unsplash