Starf umhverfisstjóra laust til umsóknar
Ferðamálastofa óskar eftir að ráða umhverfisstjóra í 100% starf. Umhverfisstjóri heyrir undir stjórnsýslu- og umhverfissvið, en starfstöð getur verið í Reykjavík eða á Akureyri. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Starfssvið m.a.:
- Mat á umsóknum og önnur fagleg þjónusta Ferðamálastofu vegna Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
- Umsagnir um þingmál, skipulagsmál og önnur erindi er varða starfssvið umhverfisstjóra.
- Verkefni sem tengjast ferðamannaleiðum, t.d. göngu- og hjólaleiðum.
- Umsjón með útgáfu- og fræðslumálum Ferðamálastofu er snerta umhverfis- og skipulagsmál á sviði ferðaþjónustu.
- Ábyrgð á umhverfisstefnu Ferðamálastofu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði skipulagsmála, byggingaframkvæmda eða hönnunar áfangastaða.
- Framhaldsmenntun á sviði umhverfismála er æskileg.
- Reynsla af ferðaþjónustu- eða útivistarframkvæmdum er æskileg.
- Reynsla af styrkúthlutunum og eftirfylgni við styrkúthlutanir æskileg.
Leitað er að hæfum einstaklingi, karli eða konu, sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika.
Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu norðurlandamáli er æskileg, sem og góð tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helena Þ. Karlsdóttir, forstöðumaður stjórnsýslu- og umhverfissviðs (helena@ferdamalastofa.is), en upplýsingar um starfsemi Ferðamálastofu er að finna hér á vefnum.
Umsóknarfrestur og skil á umsóknum
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2015 og er óskað eftir því að viðkomandi einstaklingur geti hafið störf í september. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast með tölvupósti á upplysingar@ferdamalastofa.is eða á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík og vera merktar Umhverfisstjóri. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða, en öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um starfið hefur verið tekin.