Stikum af stað ráðstefna um ferðagönguleiðir
Ferðamálstofa, Ferðafélag Íslands og Útivist standa fyrir ráðstefnu um ferðagönguleiðir 5. mars 2015 undir yfirskriftinni "Stikum af stað". Á ráðstefnunni verður fjallað um framtíðarskipulag og -þróun lengri gönguleiða. Ráðstefnan verður haldin í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6, kl. 13-17.
Landsnet ferðaleiða í Sviss
Meðal framsögumanna verða Lukas Stadtherr frá Swiss Mobility (sjá mynd) en sú stofnun hefur það hlutverk að þróa landsnet ferðaleiða í Sviss. Verkefnið hófst 1993 og nú er í Sviss vel þróað net göngu-, hjóla-, línuskauta- og kanóleiða.
Þjóðstígar á Íslandi
Gísli Rafn Guðmundsson mun kynna verkefnið Þjóðstígar á Íslandi. Í því riti sem kom út haustið 2014 eru lögð drög að þróun gönguleiðakerfis fyrir Ísland. Verkefnið, sem unnið var í samvinnu við Ferðamálastofu, var tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2015.
Uppbygging og framtíðarsýn
Því næst verður sex styttri fyrirlestrar um uppbyggingu og framtíðarsýn fyrir langar gönguleiðir og tengda áfangastaði - sjá dagskrá hér að neðan.
Ekkert þátttökugjald er en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér
Dagskrá:
13:00 Ferðamálastjóri setur ráðstefnuna
13:10 SwitzerlandMobility: The national offer of walking routes as part of an extensive system Lukas Stadtherr
14:00 Stefnumótun og uppbygging þjóðstígakerfis á Íslandi Gísli Rafn Guðmundsson
14:30 Kaffi
15:00 Laugavegurinn 35 ár uppbygging Páll Guðmundsson
15:15 Reykjavegur á Reykjanesi Gunnar Hólm Hjálmarsson
15:30 Þingvellir og þjóðgarðar erlendar fyrirmyndir Ólafur Örn Haraldsson
15:45 Dalakofinn - uppbygging á nýju svæði - Linda Udengaard
16:00 Stutt hlé
16:15 Pílagrímaleiðin Bær-Skálholt - Hulda K. Guðmundsdóttir
16:30 Hornstrandir Páll Ásgeir Ásgeirsson
16:45 Lokaorð
17:00 Ráðstefnu slitið