Svipuð fjölgun ferðamanna í ágúst og aðra mánuði í sumar
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 115.279 erlendir ferðamenn frá landinu í ágúst síðastliðnum eða um 13.400 fleiri en í sama mánuði árið 2011. Talningar Ferðamálastofu hafa sýnt fjölgun alla mánuði ársins 2012 en fjölgunin í ágúst er svipuð og aðra mánuði í sumar, júní (13,3%) og júlí (14,7%).
Tvöfalt fleiri ferðamenn á ellefu ára tímabili
Ferðamenn í ágúst voru 13,2% fleiri en í ágúst árið 2011. Þegar litið er til fjölda ferðamanna í ágústmánuði á ellefu ára tímabili (2002-2012) má sjá 8,8% aukningu milli ára að jafnaði frá árinu 2002.
Þjóðverjar, Bandaríkjamenn og Frakkar nærri 40% ferðamanna
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í ágúst frá Þýskalandi (14,4%), Bandaríkjunum (13,7%) og Frakklandi (10,6%). Ferðamenn frá Bretlandi (6,8%), Danmörku (5,3%), Noregi (5,2%), Ítalíu (4,9%), Spáni (4,8%) og Svíþjóð (4,3%) fylgdu þar á eftir.
Af einstaka þjóðum fjölgaði Þjóðverjum, Bandaríkjamönnum, Frökkum og Kínverjum mest í ágúst milli ára. Þannig komu um 2.600 fleiri Þjóðverjar í ár en í fyrra, 2.000 fleiri Bandaríkjamenn, um 1.900 fleiri Frakkar og um 1.100 fleiri Kínverjar.
Einstök markaðssvæði
Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá öllum mörkuðum. Mest er hún þó frá löndum sem eru flokkuð undir "Annað " eða 23%. Aukningin frá Bretlandi, Mið- og S-Evópu og Norður Ameríku er svipuð eða um og yfir tíu prósent. Norðurlandabúum fjölgar hlutfallslega minnst eða um 3,1%.
Ferðamenn frá áramótum
Það sem af er ári hafa 472.285 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 65.801 fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 16,2% aukningu milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað verulega milli ára frá öllum mörkuðum. Þannig hefur Bretum fjölgað um 34,4%, N-Ameríkönum um 19,0%, Mið- og S-Evrópubúum um 11,5% og ferðamönnum sem eru flokkuð undið "Annað" um 21,8%. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í minna mæli eða um 6,9%.
Ferðir Íslendinga utan
Um 37 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst síðastliðnum, 8,3% fleiri en í ágúst 2011. Frá áramótum hafa 242.904 Íslendingar farið utan, 5,9% fleiri en árinu áður þegar brottfarir mældust um 229 þúsund.
Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Talnaefni/Ferðamannatalningar hér á vefnum.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri oddny@ferdamalastofa.is
Ágúst eftir þjóðernum | Janúar - ágúst eftir þjóðernum | |||||||||
Breyting milli ára | Breyting milli ára | |||||||||
2011 | 2012 | Fjöldi | (%) | 2011 | 2012 | Fjöldi | (%) | |||
Bandaríkin | 13.821 | 15.825 | 2.004 | 14,5 | Bandaríkin | 56.900 | 69.268 | 12.368 | 21,7 | |
Bretland | 6.997 | 7.784 | 787 | 11,2 | Bretland | 45.791 | 61.542 | 15.751 | 34,4 | |
Danmörk | 6.027 | 6.110 | 83 | 1,4 | Danmörk | 30.471 | 30.223 | -248 | -0,8 | |
Finnland | 2.026 | 1.542 | -484 | -23,9 | Finnland | 9.006 | 9.562 | 556 | 6,2 | |
Frakkland | 10.376 | 12.258 | 1.882 | 18,1 | Frakkland | 30.141 | 34.121 | 3.980 | 13,2 | |
Holland | 3.619 | 4.006 | 387 | 10,7 | Holland | 15.208 | 16.465 | 1.257 | 8,3 | |
Ítalía | 5.714 | 5.653 | -61 | -1,1 | Ítalía | 10.720 | 11.775 | 1.055 | 9,8 | |
Japan | 741 | 828 | 87 | 11,7 | Japan | 4.498 | 5.783 | 1.285 | 28,6 | |
Kanada | 3.232 | 3.652 | 420 | 13,0 | Kanada | 12.677 | 13.538 | 861 | 6,8 | |
Kína | 1.323 | 2.417 | 1.094 | 82,7 | Kína | 5.966 | 9.514 | 3.548 | 59,5 | |
Noregur | 5.393 | 5.956 | 563 | 10,4 | Noregur | 29.401 | 33.987 | 4.586 | 15,6 | |
Pólland | 2.035 | 2.091 | 56 | 2,8 | Pólland | 10.758 | 10.986 |
|