Umhverfisvottun í ferðaþjónustu -tálsýn eða tækifæri?
Ferðamálaráð Íslands og Samgönguráðuneytið í samvinnu við Hólaskóla, Háskólann á Hólum, Landvernd, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálasamtök Íslands og Ferðamálasetur Íslands boða til ráðstefnu til að vekja athygli á og koma af stað umræðu um umhverfisvottun í ferðaþjónustu, með höfuðáherslu á umræðu um umhverfisvottun sem tæki til að ná fram sparnaði í rekstri. Ráðstefnan verður haldin miðvikudaginn 11. maí næstkomandi á Grand Hótel í Reykjavík.
Dagskrá:
- Kl. 09:00 Setning: Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs Íslands
- Kl. 09:10 Sustainability of Tourism and the Role of Certification
Mr. Eugenio Yunis, Head, Sustainable Development of Tourism, WTO - Kl. 09:45 Umhverfismerki, kostir og gallar
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, UMÍS ehf. Environice - Kl. 10:15 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 10:30 Kaffihlé
- Kl. 11:00 Ferðaþjónustan og samfélagið, hlutverk sveitarstjórna
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar - Kl. 11:20 Umhverfisvitund og markaðssetning
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri - Kl. 11:40 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 12:00 Matarhlé
- Kl. 12:00 Veggspjaldakynning ? Vottunaraðilar í ferðaþjónustu:
Green Globe 21, Norræni Svanurinn, Bláfáninn og ISO 14001 - Kl. 13:30 Græn innkaup, hver er galdurinn?
Finnur Sveinsson, umhverfis- og viðskiptafræðingur - Kl. 13:50 Ábyrg umhverfisvitund, hlutverk hagsmunasamtaka
Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðingur SAF - Kl. 14:10 Umræður og fyrirspurnir
- Kl. 14:35 Hvers virði er umhverfisvottun eða umhverfisstefna?
Flutt verða stutt erindi og í framhaldinu verða pallborðsumræður undir stjórn Tryggva Felixsonar , framkvæmdastjóra Landvermdar. Eftirfarandi erindi verða flutt:- Kl. 14:40 Sigríður Ólafsdóttir, Farfuglaheimilið í Reykjavík, Norræni Svanurinn
- Kl. 14:50 Guðrún Bergmann, Hótel Hellnar, Green Globe 21
- Kl. 15:00 Anna Sverrisdóttir, Bláa Lónið, Bláfáninn
- Kl. 15:10 Pálmar Sigurðsson, Hópbílar og Hagvagnar, ISO 14001
- Kl. 15:20 Ingibjörg Ólafsdóttir, Radisson SAS og Park Inn á Íslandi
- Kl. 15:30 Umræður með þátttöku fyrirlesaranna úr pallborði.
- Kl. 16:00 Samantekt: Pétur Rafnsson, formaður FSÍ
- Kl. 16:15 Ráðstefnuslit: Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs
Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu
Ráðstefnugjald: kr. 4.000,- og kr. 2.000,- fyrir nemendur
Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn, hádegisverður og kaffiveitingar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálaráðs Íslands í síma 464-9990 og í gegnum netfangið: upplysingar@icetourist.is