Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Eyþings
Fyrir helgi úthlutaði Menningarráð Eyþings styrkjum samkvæmt menningarsamningi Eyþings, menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Var þetta önnur úthlutun ráðsins og fór athöfnin fram í Tónlistarhúsinu Laugarborg að viðstöddu fjölmenni. Alls bárust ráðinu 75 umsóknir um rúmar 60 milljónir. 49 verkefni hlutu styrk að upphæð rúmar 20 milljónir króna.
Hæsti styrkur ráðsins féll í skaut tónlistarhátíðarinnar Akureyri International Music Festival (AIM). Að hátíðinni stendur áhugahópur um fjölbreyttan og lifandi tónlistarflutning.
Helga Haraldsdóttir skrifstofustjóri ferðamála í iðnaðarráðuneyti og Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður menningarráðs ávörpuðu samkomuna og flutt voru dans- og tónlistaratriði af styrkþegum. Mynd af styrkþegum er hér að neðan en lista yfir þá má sjá á heimasíðu Menningarráðs Eyþings. Mynd: KK/Vikudagur.