Vegvísir kynntur á Ferðamálaþingi
Allt stefnir í fjölmennt Ferðamálaþing á Akureyri þann 28. október. Vert er að ganga sem fyrst frá skráningu, ekki síst til að tryggja sértilboð á flugi og gistingu. Yfirskriftin í ár er Stefnumótun svæða Stjórnun og skipulag (e. Strategic Planning for Tourism).
Vegvísir kynntur
Um eins dags ráðstefnu er að ræða og mun þingið hefjast með ávarpi ráðherra ferðamála, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Þá má benda á að frá upphaflegri dagskrá hefur orðið sú breyting að kynning verður á hinum nýja Vegvísi í ferðaþjónustu.
Þekktir fyrirlesarar
Fyrirlesarar eru bæði erlendir og innlendir. Þannig má nefna að annar aðalfyrirlesara er S. Michael Hall frá Nýja-Sjálandi, einn virtasti fræðimaður á sviði ferðamálafræði í heiminum í dag. Annar erlendur fyrirlesari kemur frá Skotlandi, Thomas Riddell Graham, frá Visit Scotland.
Tilboð á flugi og gistingu
Ekkert skráningargjald er á þingið sjálft en um kvöldið er val um sameiginlegan kvöldverð og skemmtun á Hótel KEA sem greitt er fyrir (skráningarfrestur í kvöldskemmtun er til 20. október). Sértilboð er á flugi og gistingu í tengslum við þingið. Sjá nánar hér að neðan.
Dagskrá:
09:30 | Skráning og afhending gagna |
09:45 |
Setning Ferðamálaþings |
09:55 | Ávarp ráðherra ferðamála -Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
10:05 | Vegvísir í ferðaþjónustu -Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri |
10:20 | Kaffihlé |
10:35 | Tourism Destination Planning: A Realist Position in a Land of Make Believe -C. Michael Hall, prófessor við University of Canterbury á Nýja-Sjálandi |
11:15 | Nýtt verkfæri í skipulags- og stefnumótunarvinnu: Gagnagrunnur um kortlagningu auðlinda ferðaþjónustunnar -Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og Árni Geirsson frá Alta |
11:35 | Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent |
11:45 | Pallborðsumræður |
12:05 | Matarhlé |
13:00 | Scotlands National Tourism Development Framework -Thomas Riddell Graham Director of Partnerships, Visit Scotland |
13:40 | Ferðaþjónusta og skipulag -Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu |
13:55 | Stefnumótandi skipulagsgerð -Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta |
14:10 | Öryggi í skipulagi og áhættustýring svæða -Böðvar Tómasson, fagstjóri Bruna- og öryggissviðs hjá EFLU |
14:25 | Gæðaáfangastaður Íslands 2015 - EDEN - Afhending viðurkenninga |
14:35 | Kaffihlé |
15:05 | Hugleiðing -Sr. Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur við Akureyrarkirkju |
15:15 | Stefnumótun-skipulag og hönnun í þjóðgarðinum á Þingvöllum. -Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þingvallaþjóðgarðs |
15:30 | Hvaða gögn eru til gagns...í svæðisbundinni stefnumótun í ferðaþjónustu? -Lilja B. Rögnvaldsdóttir, Rannsóknasetri HÍ á Húsavík |
15:45 | Er rétt gefið? - Sjónarhorn sveitarfélags -Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps |
16:00 | Áfangastaðurinn Akureyri - stefnumótun -Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu |
15:15 | Ég er ALLS EKKI á móti ferðamönnum, en... -Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra |
16:30 | Pallborðsumræður |
17:00 | Þingi slitið |
Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdstjóri Markaðsstofu Norðurlands. | |
Kvölddagskrá (kr. 6.500-) | |
18:30 | Fordrykkur á Hótel KEA í boði Akureyrarbæjar |
19:30 | Kvöldverður og skemmtidagskrá |
Veislustjóri: Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu |
Skráning og verð
-Skráning á þingið, kaffiveitingar og hádegisverður, er án endurgjalds
-Sameiginlegur kvöldverður og skemmtun á Hótel KEA kr. 6.500.- (greitt á staðnum)
-Skráningarfrestur í kvöldskemmtun er til 20. október
-Sértilboð á hótelgistingu og flugi, sjá nánar á skráningarblaði
- Skráning á Ferðamálaþing 2015 (skráningu er lokið en hægt að fylgjast með netútsendingu)
Netútsending
Þingið verður sent út beint á netinu:
https://global.gotomeeting.com/join/334686029