Vestnorden í fullum gangi
Vestnorden ferðakaupstefnan hófst í Reykjavík í morgun. Um 550 manns taka þátt í þessari stærstu ferðakaupstefnu sem haldin er á Íslandi annað hvert ár og alls hefur Vetsnorden nú verið haldin 21 sinni.
Vestnorden er haldin á vegum ferðamálayfirvalda í Færeyjum á Grænlandi og Íslandi auk þess sem Shetlandseyjar hafa komið að kaupstefnunni hin síðari ár. Að þessu sinni munu um 300 ferðaþjónustuaðilar frá um 160 fyrirtækjum í aðildarlöndunum kynna vöru sína og þjónustu fyrir kaupendum. Nú í ár eru kaupendur 200 talsins frá 143 fyrirtækjum og koma þeir frá 30 löndum. Þá koma til kaupstefnunnar blaðamenn og boðsgestir þannig að heildarfjöldi þátttakenda eru um 550 talsins. Vestnorden lýkur á morgun. Meðfylgjandi myndir voru teknar á kaupstefnunni í morgun.
Einar Gústavsson, Lisbeth Jensen og Ársæll Harðarson í bás Ferðamálastofu. | Bás Hótel Búða. |
Fulltrúar Hótel Selfos á fundi með með kaupendum. | Bás Hótel Cabin. |
Spurningin er hvort veran fremst á myndinni sé að bíða eftir fundi með fulltrúum kaupenda á Vestnorden. | Steingrímur Birgisson frá Bílaleigu Akureyrar. |