Ferðamálaþing 2015
Um 250 manns sóttu árlegt Ferðamálaþing sem að þessu sinni var haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 28. október. Ferðamálastofa hélt þingið en yfirskriftin í ár var Stefnumótun svæða Stjórnun og skipulag (e. Strategic Planning for Tourism).
Þingið hófst með ávarpi ráðherra ferðamála, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Tveir erlendir fyrirlesarar héldu erindi á þinginu og hluti góðar undirtektir. Frá Nýja-Sjálandi kom C. Michael Hall, sérfræðingur í stefnumótun og skipulagningu áfanagastaða og prófessor við University of Canterbury. Er hann almennt talinn einn virtasti fræðimaður á sviði ferðamálafræði í heiminum í dag. Frá Skotlandi kom Thomas Riddell Graham, einn af stjórnendum Visit Scotland, þar sem hann ber meðal annars ábyrgð á svæðisbundinni þróun, gæðamálum og upplýsingaveitu.
Innlendu fyrirlesararnir komu víða að, bæði frá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Markmiðað var að leiða fram sem flesta þætti sem hafa þarf í huga þegar stefnumótun svæða er annars vegar og beina sjónum að þeim tólum og tækjum sem sveitarfélög og aðrir skipulagsaðilar hafa úr að spila þegar stefnumörkun fyrir ferðaþjónustuna er annars vegar.
Meðal annars kynnti Ferðamálastofa nótt tól í þessu samhengi sem gengið hefur undir nafninu Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu. Miðar það að því að kortleggja, með aðstoð landfræðilegra upplýsingakerfa, mögulega viðkomustaði ferðafólks og helstu innviði svæða í samstarfi við heimafólk og greina þannig með myndrænum hvar auðlindir ferðaþjónustunnar og tækifæri liggja til framtíðar.
Hér að neðan má nálgast erindi up upptökur frá þinginu.
Setning Ferðamálaþings |
Upptaka | |
Ávarp ráðherra ferðamála -Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
Upptaka | |
Vegvísir í ferðaþjónustu -Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri |
Glærur | Upptaka |
Tourism Destination Planning: A Realist Position in a Land of Make Believe -C. Michael Hall, prófessor við University of Canterbury á Nýja-Sjálandi |
Glærur | Upptaka |
Nýtt verkfæri í skipulags- og stefnumótunarvinnu: Gagnagrunnur um kortlagningu auðlinda ferðaþjónustunnar -Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og Árni Geirsson frá Alta |
Glærur | Upptaka |
Pallborðsumræður | Upptaka | |
Scotlands National Tourism Development Framework -Thomas Riddell Graham Director of Partnerships, Visit Scotland |
Glærur | Upptaka |
Ferðaþjónusta og skipulag -Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu |
Glærur | Upptaka |
Stefnumótandi skipulagsgerð -Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta |
Glærur | Upptaka |
Öryggi í skipulagi og áhættustýring svæða -Böðvar Tómasson, fagstjóri Bruna- og öryggissviðs hjá EFLU |
Glærur | Upptaka |
Hugleiðing -Sr. Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur við Akureyrarkirkju |
Upptaka | |
Stefnumótun-skipulag og hönnun í þjóðgarðinum á Þingvöllum. -Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þingvallaþjóðgarðs |
Glærur | Upptaka |
Hvaða gögn eru til gagns...í svæðisbundinni stefnumótun í ferðaþjónustu? -Lilja B. Rögnvaldsdóttir, Rannsóknasetri HÍ á Húsavík |
Glærur | Upptaka |
Er rétt gefið? - Sjónarhorn sveitarfélags -Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps |
Glærur | Upptaka |
Áfangastaðurinn Akureyri - stefnumótun -Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu |
Glærur | Upptaka |
Ég er ALLS EKKI á móti ferðamönnum, en... -Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra |
Glærur | Upptaka |
Pallborðsumræður | Upptaka | |
Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdstjóri Markaðsstofu Norðurlands. | ||