Stefnumarkandi stjórnunaráætlanir - DMP (fundir haust 2016)
Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa héldu 14 kynningarfundi um gerð áfangastaðaáætlana (einnig nefnt stefnumarkandi stjórnunaráætlanir) haustið 2016. Á fundunum kynntu Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem skoski ráðgjafinn Tom Buncle fór ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Nánari upplýsingar um stefnumarkandi stjórnunaráætlanir í PDF-skjali
Efni frá fundunum er aðgengilegt hér að neðan.
Inngangur - Óskar Jósefsson
Kynning verkefnins - Anna Katrín Einarsdóttir
Eðli, markmið og tilgangur DMP - Tom Buncle
Tímalína og fjármögnun - Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Nánari upplýsingar
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, verkefnastjóri svæðisbundinnar þróunar
hrafnhildur@ferdamaalstofa.is