Erlendir ferðamenn á Egilsstöðum, Húsavík, Hvammstanga, Ísafirði, Reykjanesbæ, Reykjavík, Stykkishólmi og Vík sumarið 2018
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Erlendir ferðamenn á Egilsstöðum, Húsavík, Hvammstanga, Ísafirði, Reykjanesbæ, Reykjavík, Stykkishólmi og Vík sumarið 2018 |
Undirtitill | Niðurstöður ferðavenjukönnunar |
Lýsing | Í ágúst 2019 komu út skýrslur með niðurstöðum ferðavenjukönnunar 2018 meðal erlendra gesta á átta áfangastöðum um allt land. Könnunin aflaði upplýsinga um ýmsa einkennandi þætti ferðamanna á rannsóknarsvæðunum, svo sem búsetuland, ferðamáta, gistimáta og dvalarlengd, auk þess sem ástæða heimsóknar og útgjaldamynstur þeirra var skoðað. Áfangastaðirnir 8Ferðamálastofa fól Rannsóknamiðstöð ferðamála að framkvæma könnunina sumarið 2018. Könnunin náði til átta áfangastaða: Reykjavíkur, Reykjanesbæjar, Víkur, Stykkishólms, Ísafjarðar, Hvammstanga, Húsavíkur og Egilsstaða. Sem fyrr var framkvæmdin í höndum Lilju B. Rögnvaldsdóttur verkefnastjóra en hún hefur staðið að gerð sambærilegra kannana frá árinu 2013. Hér að neðan má hlaða niður skýrslum fyrir hvern áfangastað um sig: Ólík útgjöld milli áfangastaðaHelstu niðurstöður sýna að ferðavenjur og útgjöld erlendra gesta voru talsvert ólík eftir stöðum og lá helsti munurinn í ástæðum heimsóknar, dvalartíma og neyslumynstri gesta. Meðalútgjöld ferðamanna á sólarhring voru hæst í Reykjavík, voru alls 38 þúsund krónur, þar sem gisting, veitingar og afþreying voru veigamestu útgjaldaliðirnir. Vægi útgjaldaliða var hins vegar nokkuð ólíkt eftir stöðunum og til að mynda var hæsti útgjaldaliðurinn á Húsavík afþreying þar sem vægi hvalaskoðunar er mikið. Á Húsavík voru útgjöldin um 18 þúsund krónur á sólarhring. Lægst voru þau á Hvammstanga, um 8 þúsund krónur. Með öðrum orðum lætur nærri að eyðsla hvers ferðamanns í Reykjavik sé fimmfalt hærri en á Hvammstanga. Dvelja lengst í höfuðborginniTjaldsvæðin voru vinsælli gistimáti á landsbyggðinni en á suðvestur horninu þar sem hótelgisting og einkagisting s.s. Airbnb voru algengari. Lengst dvöldu gestir í höfuðborginni en styst á Hvammstanga. Almenn ánægja með dvölinaGestir staðanna voru almennt ánægðir með dvölina og víða komu fram jákvæðar athugasemdir um náttúrufegurð og þjónustu en þó var einnig greinileg óánægja með hátt verðlag. Efni og upptökur frá kynninguNiðurstöður könnunarinnar má finna í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Kannanir. Þá ná hér að neðan nálgast efni og upptökur frá kynningarfundi sem haldinn var sl. vetur þar sem helstu niðurstöður voru kynntar. |
Skráarviðhengi | Ná í viðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ferðavenjur |
Útgáfuár | 2019 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
Leitarorð | Siglufjörður, Húsavík, Reykjavík, Egilsstaðir, Hvammstangi, Vík, Stykkishólmur, Ísafjörður, ferðavenjur, kannanir, könnun, útgjöld, upplifun, viðhorf, ferðamenn, ferðahegðun, fjöldi ferðamanna, tölfræði, talnaefni, talningar |