Ferðalög Íslendinga 2022 og ferðaáform þeirra 2023
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Ferðalög Íslendinga 2022 og ferðaáform þeirra 2023 |
Lýsing | Niðurstöður úr árlegri könnun Ferðamálastofu meðal landsmanna um ferðalög á árinu 2022 og ferðaáform á árinu 2023 liggja nú fyrir. Könnunin var gerð dagana 23. janúar til 23. febrúar og var framkvæmdin í höndum Gallup. Sambærileg könnun hefur verið framkvæmd á vegum Ferðamálastofu í rúman áratug, eða frá árinu 2010. Samandregnar niðurstöður um ferðalög landsmanna 2022:
NPS skor - Talsmönnum ferðalaga innanlands fækkarMeðmælaskor (NPS) landsmanna fyrir ferðalög innanlands mældist 15 í ársbyrjun 2023 en það mældist á bilinu 23-34 stig á árunum 2019-2022. Um er að ræða kvarða á bilinu 0-10 þar sem spurt er hversu líklegt eða ólíklegt sé að fólk muni mæla með ferðalögum innanlands. Hlutfall hvetjenda eða talsmanna ferðalaga á Íslandi (þeir sem gáfu 9-10 í einkunn) var lægra í ár en það hefur mælst síðastliðin fjögur ár. Um 42% voru í hópi hvetjenda í ár en á árunum 2019-2022 voru hvetjendur ferðalaga á bilinu 48%-56%. Þegar rökstuðningur svarenda í ár fyrir einkunnagjöf er skoðaður má sjá að um helmingur ummæla þeirra sem gáfu lægstu einkunn (0-6) og miðlungseinkunn (7-8) snérist um háa verðlagningu á ýmsum kostnaðarliðum í ferðaþjónustu og hversu dýrt væri að ferðast um landið. MinnisstæðastFjölmargt var nefnt þegar svarendur voru inntir eftir því hvað þeim fannst minnisstæðast úr ferðalögum sínum innanlands á síðasta ári. Náttúrutengdir þættir voru nefndir í miklum mæli sem og einstaka staðir og svæði á landinu. Auk þess nefndu fjölmargir ýmiss konar afþreyingu og menningartengda starfsemi. Um var að ræða opna spurningu þar sem svarendur gátu nefnt allt að þrjú atriði. Svörin má sjá í viðauka en þeim var raðað eftir 29 yfirheitum. ÚtivistSpurt var um ástundun 19 útivistarmöguleika sem landsmenn stunda í daglegu lífi og á ferðalögum sér til heilsubótar og/eða ánægju. Tæplega sjö af hverjum tíu stunduðu almenna útiveru einu sinni í viku eða oftar á síðasta ári eða álíka margir og árið 2021. Um 18% skokkuðu eða stunduðu náttúruhlaup, um 17% fóru í lengri gönguferðir (þ.m.t. fjall- og jöklagöngur) og um 15% fóru í hjólaferðir einu sinni í mánuði eða oftar. Aðrir útivistarmöguleikar voru stundaðir í minna mæli.
Ferðaáform 2023Ferðalög til útlanda leita jafnvægisÞrír af hverjum tíu landsmönnum hafa í hyggju að ferðast meira innanlands í ár en í fyrra, ríflega helmingur (54%) svipað og um 17% minna. Um er að ræða svipaðar niðurstöður og komu fram í könnuninni fyrir ári síðan. Þegar kemur að utanlandsferðum áforma færri ferðalög í ríkari mæli (-21%) í ár en þegar spurt var á sama tíma í fyrra. Ríflega tveir af hverjum fimm (43%) ætla að ferðast svipað í ár til útlanda og þeir gerðu í fyrra og 23% minna. Hvers konar ferðir eru fyrirhugaðar 2023Ferðaáform landsmanna eru fjölbreytt að vanda. Um 52% ætla í sumarbústaðaferð innanlands á árinu , um 46% í heimsókn til vina og ættingja og um 32% í borgar- eða bæjarferð innanlands. Mun fleiri nefna í ár en í fyrra að þeir ætli í borgarferð erlendis (+14%) og fleiri ætla jafnframt í sólarlandaferð (+5%) og heimsókn til vina og ættingja (+3%). Um einn af hverjum tíu landsmönnum hefur engin ferðaáform á árinu. Ferðalög á tímabilinu febrúar- maí 2023Um sjö af hverjum tíu landsmönnum (69%) sögðust hafa áform um ferðalög næstu mánuði (febrúar til maí) þar sem gist yrði yfir nótt, þar af ætla ríflega tveir af hverjum fimm í sumarbústaðaferð, um tveir af hverjum fimm að heimsækja vini eða ættingja og um fjórðungur í borgar- að bæjarferð innanlands. Tæplega þriðjungur (30%) ætlar að nýta sér hótelgistingu. Um könnuninaKönnunin var unnin sem netkönnun á tímabilinu 23. janúar til 23. febrúar 2023. Úrtakið var 1.933 einstaklingar, 18 ára og eldri af landinu öllu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Svarfjöldi var 1.043 einstaklingar og var þátttökuhlutfallið 52,3%. Gögn könnunarinnar voru vigtuð til þess að úrtakið endurspeglaði þýðið með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Framkvæmd og úrvinnsla var í höndum Gallup í samvinnu við Ferðamálastofu. Í yfirgripsmikilli skýrslu um könnunina eru niðurstöður settar fram í 12 köflum með myndrænum hætti og í töflum, auk viðauka og leiðbeininga um túlkun niðurstaðna. Fremst eru samandregnar niðurstöður en þaðan er vísað í nánari útlistun á niðurstöðum einstakra spurninga. Í viðbótarskýrslu má finna niðurstöður úr spurningu um útivist landsmanna. |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Oddný Þóra Óladóttir |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ferðavenjur |
Útgáfuár | 2023 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
ISBN | 987-9935-522-26-6 |
Leitarorð | ferðavenjur, ferðaáform, ferðir 2022, ferðalög, ferðalag, ferðalög íslendinga, innanlands, innanlandskönnun, ferðahegðun, sumar, sumarfrí |