Ferðalög Íslendinga 2023 og ferðaáform þeirra 2024
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Ferðalög Íslendinga 2023 og ferðaáform þeirra 2024 |
Lýsing | Samkvæmt nýlegri könnun Ferðamálastofu meðal landsmanna var ferðaárið 2023 með líflegasta móti og áform um ferðalög á árinu 2024 að sama skapi fjölbreytt. Niðurstöður könnunarinnar sem var gerð á tímabilinu 25. janúar til 13. febrúar af Gallup gefa til kynna að ríflega átta af hverjum tíu landsmönnum hafi ferðast innanlands á síðasta ári, um sjö af hverjum tíu farið í dagsferð og um átta af hverjum tíu í utanlandsferð. Allt bendir til að ferðalög landsmanna innanlands leiti jafnvægis og líkist því sem var fyrir Covid-19 faraldurinn. Ferðalög innanlands þykja dýrÝmsar viðhorfsspurningar í könnuninni gefa til kynna að landsmönnum finnist of dýrt að ferðast um landið en tveir af hverjum fimm nefndu hátt verðlag þegar þeir voru inntir eftir því hvort eitthvað stæði í vegi fyrir því að þeir ferðuðust innanlands. Margt annað kemur til s.s. veðrið (25,2%), efnahagur (18,1%), vinnan (17,0%) og utanlandsferðir (15%). Rökstuðningur fyrir meðmælaskori (NPS)* svarenda fyrir ferðalögum innanlands snérist jafnframt að miklu leyti um hversu dýrt væri að ferðast um landið en NPS skorið mældist 14 í ársbyrjun 2024 eða tuttugu stigum lægra en þegar það mældist hæst, árið 2020. Tækifæri á innanlandsmarkaðnumHelstu hvatar að ferðalögum landsmanna innanlands samkvæmt könnuninni eru að njóta samveru með fjölskyldu eða vinum (66,4%), ferðast um og njóta náttúrunnar og nýrra staða (63,1%) og að komast í burtu frá hversdagsleikanum (41,6%). Þó svo helmingur landsmanna segist fara oftast á sömu staðina þegar þeir ferðast innanlands langar átta af hverjum tíu að upplifa eitthvað nýtt og heimsækja nýja staði. Ferðalög um landið virðast þó ekki ætla að verða á kostnað utanlandsferða en innan við fimmtungur segist hafa meira gaman af því að ferðast innanlands en utan. Umhverfisvitund landans virðist ekki standa í vegi fyrir ferðalögum utan en tæplega þrír af hverjum fimm ætla ekki að fækka utanlandsferðum á næstu misserum af umhverfisástæðum. Hvaða staðir/landsvæði mest spennandiÞegar svarendur voru spurðir hvaða staðir eða landsvæði þeim fyndist mest spennandi til ferðalaga á Íslandi voru Vestfirðir oftast nefndir (16,7%) en þar á eftir komu Austurland/Austfirðir (12,4%), Norðurland (7,4%), Suðurland (6,9%), Hálendið (5,8%) og Snæfellsnes (4,6%). Fjölmargir staðir og svæði voru jafnframt nefnd þegar svarendur voru spurðir um hvað var minnisstæðast úr ferðalögum þeirra innanlands á síðasta ári en náttúrutengdir þættir, afþreying af ýmsu tagi og menningartengd starfsemi skoruðu jafnframt hátt. Ferðaáform 2024Fjórðungur landsmanna (25,4%) hefur í hyggju að ferðast meira innanlands í ár en í fyrra, tæplega þrír af hverjum fimm (56,9%) svipað og um 17,7% minna. Þegar kemur að utanlandsferðum áformar um fimmtungur (21,2%) að ferðast meira til útlanda, um helmingur (51,1%) svipað og tæplega þrír af hverjum tíu (27,7%) minna.
Margskonar ferðalög eru fyrirhuguð. Um helmingur ætlar í sumarbústaðaferð innanlands á árinu og álíka hátt hlutfall (49,1%) í borgarferð erlendis. Um tveir af hverjum fimm (42,2%) hafa áform um að heimsækja vini og ættingja hérlendis og ríflega fjórðungur (28,4%) erlendis. Sólarlandaferðir er jafnframt vinsælar sem og vinaferðir og útivistarferðir. Tæplega einn af hverjum tíu (8,4%) landsmönnum hefur engin ferðaáform á árinu. Samandregnar niðurstöður um ferðalög landsmanna 2023:
Um könnuninaKönnunin var unnin sem netkönnun á tímabilinu 25. janúar til 13. febrúar 2024. Úrtakið var 2.505 einstaklingar, 18 ára og eldri af landinu öllu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Svarfjöldi var 1.197 einstaklingar og var þátttökuhlutfallið 47,8%. Gögn könnunarinnar voru vigtuð til þess að úrtakið endurspeglaði þýðið með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Framkvæmd og úrvinnsla var í höndum Gallup í samvinnu við Ferðamálastofu. Í yfirgripsmikilli skýrslu um könnunina eru niðurstöður settar fram í 12 köflum með myndrænum hætti og í töflum, auk viðauka og leiðbeininga um túlkun niðurstaðna. Fremst eru samandregnar niðurstöður en þaðan er vísað í nánari útlistun á niðurstöðum einstakra spurninga. Í viðbótarskýrslu má finna niðurstöður úr spurningu um ástundun 19 útivistarmöguleika sem landsmenn stunda í daglegu lífi og á ferðalögum sér til heilsubótar og/eða ánægju. Skýrslur* NPS (Net Promoter score): Um er að ræða alþjóðlegan mælikvarða sem segir til um mismun á hlutfalli þeirra sem eru tilbúnir að mæla með t.d. áfangastað, fyrirtæki eða vöru og hlutfalli þeirra sem eru líklegri til að mæla gegn sömu þáttum. NPS skor getur verið á bilinu -100 til 100.Nánari upplýsingar gefur Oddný Þóra Óladóttir - oddny@ferdamalastofa.is |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ferðavenjur |
Útgáfuár | 2024 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
ISBN | 978-9935-522-37-5 |
Leitarorð | ferðavenjur, ferðaáform, ferðir 2020, ferðalög, ferðalag, ferðalög íslendinga, innanlands, innanlandskönnun, ferðahegðun, sumar, sumarfrí |