Ferðamenn í Hrísey 2019 - Niðurstaða könnunar
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Ferðamenn í Hrísey 2019 - Niðurstaða könnunar |
Lýsing | Náttúra og staðsetning Hríseyjar eru helstu aðdráttaröflin fyrir ferðamenn sem leggja leið sína til eyjarinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu RMF en niðurstöður hennar eru unnar úr könnun sem framkvæmd var meðal ferðamanna í Hrísey af Akureyrarstofu sumarið 2019. Helstu niðurstöður könnunarinnar sýna t.a.m. að ferðamenn eru almennt mjög ánægðir með dvölina og tæpur helmingur þeirra gisti yfir nótt. Þegar kom að afþreyingu ferðamanna í Hrísey var fuglaskoðun og gönguferðir um eyjuna vinsælast, ásamt því að fara í sund og taka ljósmyndir. Markmiðið með könnuninni var að afla upplýsinga um ferðahegðun og upplifun ferðamanna í Hrísey en meðal þess sem kannað var hjá ferðamönnum var ferðamáti þeirra, dvalarlengd og hvernig þeir öfluðu sér upplýsinga um eyjuna. Gagnaöflun var í höndum Akureyrarstofu en RMF sá um úrvinnslu gagna og samantekt á niðurstöðum. Verkefnið var unnið með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Vera Vilhjálmsdóttir |
Nafn | Ragnar Hólm Ragnarsson |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ferðavenjur |
Útgáfuár | 2020 |
Útgefandi | Rannsóknamiðstöð ferðamála |
ISBN | 978-9935-505-00-2 |
Leitarorð | hrísey, eyjafjörður, akureyri, akureyrarstofa, rannsóknamiðstöð ferðamála |