Ferðavenjur Íslendinga um Norðurland að vetri
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Ferðavenjur Íslendinga um Norðurland að vetri |
Lýsing | Rannsóknamiðstöð ferðamála kannaði í samvinnu við Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Akureyrarstofu, Sveitarfélagið Skagafjörð og Vetraríþróttamiðstöð Íslands ferðavenjur Íslendinga og hver samsetning ferðamannanna er yfir vetrartímann með áherslu á Norðurland sem áfangastað. Fáar rannsóknir hafa sérstaklega miðast við að kanna ferðavenjur Íslendinga að vetri til og einstök svæði hafa ekki verið skoðuð sérstaklega líkt. Rannsóknin byggir á könnun sem Rannsóknamiðstöð ferðamála hafði umsjón með. Könnunin er liður í stærri áætlun Rannsóknamiðstöðvarinnar um rannsóknir á ferðavenjum Íslendinga. Vinnan er unnin í samráði við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á svæðinu með það að markmiði að fá fram sjónarmið sem flestra svo að hægt verði að vinna með niðurstöðurnar í þeirra þágu. Í skýrslunni er greint frá rannsókninni og niðurstöðum könnunarinnar sem var símakönnun. Voru lagðar spurningar fyrir Íslendinga sem var ætlað að meta ferða- og neysluvenjur íslenskra ferðamanna á Norðurlandi að vetri til. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Eyrún Jenný Bjarnadóttir |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ferðavenjur |
Útgáfuár | 2008 |
Útgefandi | Rannsóknamiðstöð ferðamála |
ISBN | 978-9979-834-68 |
Leitarorð | Rannsóknamiðstöð ferðamála, Norðurland, ferðavenjur, ferðavenjur Íslendinga, Akureyri, vetur, vetrarferðir, vetrarferðamennska, lágönn, skíði, hlíðarfjall, dalvík, ólafsfjörður, siglufjörður, fjallabyggð, dalvíkurbyggð, skagafjörður, tindastóll, skarðsdalur |