Lýsing |
Niðurstöður úr könnun meðal erlendra ferðamanna sem heimsóttu landið sumarið 2014. Um er að ræða framhald könnunar sem Maskína sá um að framkvæma fyrir Ferðamálastofu veturinn 2013-2014. Með könnuninni var aflað upplýsinga um erlenda ferðamenn á Íslandi, aðdragandann að Íslandsferðinni, ferðahegðun þeirra á Íslandi, eyðsluhætti og viðhorf þeirra til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um var að ræða netkönnun á tímabilinu júlí til október 2014 þar sem netföngum var safnað með skipulögðum hætti á komu- og brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og á Seyðisfirði meðal ferðamanna sem ferðuðust með Norrænu. Úrtakið var 4.586 manns og var svarhlutfallið 57,3%. |