Lýsing |
Niðurstöður úr könnun meðal erlendra ferðamanna sem Maskína sá um að framkvæma fyrir Ferðamálastofu veturinn 2013-2014. Með könnuninni var aflað upplýsinga um erlenda ferðamenn á Íslandi, aðdragandann að Íslandsferðinni, ferðahegðun þeirra á Íslandi, eyðsluhætti og viðhorf þeirra til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um var að ræða netkönnun þar sem netföngum var safnað með skipulögðum hætti á komu- og brottfararsvæði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á tímabilinu október 2013 til maí 2014. Úrtakið var 4.500 manns og var svarhlutfallið 55,8%. Könnunin var unnin með sambærilegum hætti og síðasta könnun, sem framkvæmd var á tímabilinu september 2011 til maí 2012. |