Lýsing |
Eftirfarandi skýrsla fjallar um niðurstöður könnunar Ferðamálaráðs meðal erlendra ferðamanna fyrir tímabilið frá janúar til maí 1999. Svör við einstökum spurningum eru unnin eftir þjóðerni og markaðssvæðum (viðauki 2), þjóðfélagsstöðu, tegund ferðar, tilgangi og gistimáta (viðauki 3). Í framhaldi af umfjöllun um framkvæmd og áreiðanleika eru niðurstöðurnar settar fram á myndrænan hátt, en þaðan er vísað í töflur í viðauka tvö og þrjú þar sem finna má heildarniðurstöður fyrir hverja spurningu. |