Úttekt á stuðnings- og þjónustuumhverfi nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Úttekt á stuðnings- og þjónustuumhverfi nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar |
Undirtitill | Könnunar- og úttektarverkefni |
Lýsing | Með breyttu starfsumhverfi og nýjum samkeppnisþáttum sem nú eru að skapast í atvinnumálum hér á landi m.a. með aðild okkar að EES, vaknar sú spurning hvort núverandi skipan þjónustu og stuðningsaðgerða sé líkleg til þess að fylgja eftir markmiðum um aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins út á við. Með því að kortleggja núverandi skipan þessara mála skapast grundvöllur til þess að fjalla um það á faglegan hátt og síðan athuga hvort breytinga sé þörf. Aflvaki Reykjavíkur hf. hyggst beita sér fyrir því að fram fari víðtæk úttekt á stuðnings- og þjónustuumhverfi nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar og leitar samstarfs um verkefnið við ýmsa tengda aðila. Samhliða því að afla sem gleggstra upplýsinga um núverandi stöðu hér á landi verður einnig leitað upplýsinga frá nágrannalöndum okkar, einkum í því skyni að draga fram lærdóm af skipulagsbreytingum og nýsköpun sem víða hefur átt sér stað, s.s. í Noregi og Svíþjóð. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Sigurður Ágúst Jensson |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Nýsköpun og vöruþróun |
Útgáfuár | 1995 |
Útgefandi | Aflvaki Reykjavíkur hf. |
Leitarorð | Verkefnið, tilgangur, markmið, efnisþættir, listi yfir stuðnings- og þjónustuaðila, landfræðileg greining, greining eftir atvinnuvegum, starfsþáttagreining, sérstök verkefni, opinber aðstoð, opinber fyrirtæki, fyrirtæki í einkageira, framkvæmd, aðdragandi, undirbúningur, næstu skref, úrvinnsla, tímarammi. |