Áfangastaðaáætlun Austurlands 2018-2021
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Áfangastaðaáætlun Austurlands 2018-2021 |
Lýsing | Austurbrú hefur birt Áfangastaðaáætlun Austurlands sem unnin er í samstarfi við Ferðamálastofu og markaðsstofur landshlutanna. Áfangastaðaáætlunin er byggð á vinnu síðustu fjögurra ára í verkefninu Áfangastaðurinn Austurland sem Austurland hefur haft umsjón með. Með Áfangastaðaáætlun Austurlands verður til heildræn stefna unnin á forsendum svæðisins sem eflir bæði samstöðu og slagkraft út á við. Markmið þessarar áætlunar er að stuðla að ábyrgri ferðaþjónustu sem skilar sem mestum hagnaði til samfélaga og um leið að draga úr neikvæðum áhrifum. Í skýrslunni eru meðal annars birgar niðurstöður grieningar á stöðu ferðaþjónustunnar á Austurlandi, en á grunni hennar var mótuð framtíðarsýn og aðgerðaráætlun. Hátt í tvöhundruð manns hafa mætt á vinnustofur og fundi sem haldnir hafa verið í tengslum við verkefnið Áfangastaðurinn Austurlands og hefur verið haft gott samráð við sveitarfélög í landshlutanum frá upphafi. Unnið er að styttri útgáfu af áætluninni sem kemur út á íslensku, en áætlunin er gefin út á ensku. Áætlunin verður uppfærð árlega eða eins oft og tilefni gefst til. Nánari upplýsingar um Áfangastaðaáætlun Austurlands veitir María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú. |
Skráarviðhengi |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Stefnumótun og skipulag |
Útgáfuár | 2018 |
Útgefandi | Austurbrú |
Leitarorð | dmp, austurland, áfangastaðaáætlun, áfangastaðaáætlanir, austurbrú, ferðamálastofa |