Umhverfisáhrif ferðaþjónustunnar - Myndræn hugleiðing um ástand lands og úrbætur
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Umhverfisáhrif ferðaþjónustunnar - Myndræn hugleiðing um ástand lands og úrbætur |
Lýsing | Ljóst er að gríðarleg vinna er framundan við að draga úr áhrifum ört vaxandi ferðaþjónustu á náttúru Íslands. Athyglin beinist einkum að „fjölsóttum“ stöðum en vinna þarf að verndun, uppbyggingu og viðhaldi ferðamannastaða, göngustíga og annarra ferðaleiða um allt land. Við þetta mikla starf þarf að tryggja að fagmennska og „verkleg menning“ sé með fullnægjandi hætti. Mikið er í húfi, bæði vegna umhverfisverndar og ekki síður efnahagslegs mikilvægis atvinnugreinarinnar. Mistök geta verið dýrkeypt. Í þessari skýrslu er nokkrum þeim viðfangsefnum sem við blasa lýst með myndrænum hætti. Áhersla er hér á þann vanda sem við blasir og mistök sem gerð hafa verið. Slíkt reynist oft gott til að skerpa fókus á það sem betur má fara og undirstrika þörf fyrir uppbyggingu faglegrar þekkingar. Á sama hátt er hægt að læra af því sem vel er gert. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Andrés Arnalds |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Stefnumótun og skipulag |
Útgáfuár | 2015 |
Leitarorð | umhverfi, umhverfismál, umhverfisvernd, skipulag, skipulagsmál, úrbætur, stígar, stígagerð, gróðurvernd, gróðurskemmdir, uppbygging, ferðamannastaðir, ferðaleiðir, gönguleið, gönguleiðir |