Fara í efni

Álfholtsskógur

Gönguleiðir um Álfholtsskóg eru fjölbreyttar og krefjandi en aðstaða til að njóta er fyrsta flokks.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Hvalfjarðarsveit
Upphafspunktur
N 64°22.2406 W 021°51.0028
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
  • Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Trjákurl
  • Votlendi
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Útivistarsvæði inn í Álfholtsskóg er vinsæll áfangastaður fyrir ferðalanga í Hvalfjarðarsveit en aðgengi hefur verið bætt síðastliðin ár og er svæðið skilgreint sem „Opinn skógur“. Gönguleiðir eru víða um svæðið, merkingar hafa verið settar upp og áningarstaðir inn í skóginum eru fjölmargar. Upphaf skógræktar í Álfholtsskóg má rekja til ársins 1939 en í dag má finna yfir 130 tegundir af trjám og runnum í skóginum og misjöfnum yrkjum af sömu tegund. Gönguleiðir um Álfholtsskóg eru fjölbreyttar og krefjandi en aðstaða til að njóta er fyrsta flokks. Áningarstaðir þar sem gestir geta hvílst, borðað nesti eða eingöngu að njóta svæðisins eru til staðar og auk þess eru að finna merkingar víða. Félagar í skógræktarfélagi Skilmannahrepps hafa gert mjög vel með að merkja leiðirnar og auka aðgengi fyrir göngufólk, með tilkomu brúa og trappa upp hlíðar Álfholtsskógar.