Fara í efni

Borg á Mýrum-Einkunnir gönguleið

Gönguleið á milli Borg á Mýrum-Einkunnir hefur upp á að bjóða stórkostlegt útsýni yfir Hafnarfjall og Borgarnes ásamt því fallega lífríki sem er að finna á leiðinni.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°33.6630 W021°54.9579
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Stórgrýtt
  • Votlendi
  • Blandað yfirborð
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Landvarsla
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Ferðaleið er opin 12 mánuði ársins en hafa ber í huga aðstæður yfir vetrarmánuði.
Borg á Mýrum er kirkjustaður vestur af Borgarnesi. Staðurinn er, samkvæmt Egils sögu Skallagrímssonar, landnámsjörð en kirkja hefur staðið þar frá árinu 1002. Borg á Mýrum er vel þekktur staður sem áfangastaður ferðamanna, hvort sem það er erlent eða innlent ferðafólk. Kirkjustaðurinn hefur tekið á móti erlendum gestum í árabil en gestir hafa þá fengið leiðsögn um svæðið og fengið að skoða kirkju undir handleiðslu prestins á Borg. Listaverkið Sonatorrek og útsýni yfir Borgarnes og Hafnarfjall blasir við gestum sem koma að kirkjunni. Einkunnir eru 273 hektara fólkvangur sem er að finna norðan við Borgarnes. Skógrækt hefur verið þar síðan árið 1951 en innan fólkvangsins er að finn fallega tjörn, Álatjörn ásamt fjöldan af göngustígum, áningarstöðum og gullfallegri skógrækt sem gerir Einkunnir að einum af perlum Borgarbyggðar. Minjar eru á gönguleið. Hægt er að finna þær við Borg á Mýrum en einnig á gönguleið á milli Borg og Einkunna. Árið 2015 hófst skráning á minjum við gönguleið en þar er að meðal annars að finna minjar af beitarhúsi, smalahúsi, sel og fleiru. Göngufólk er beðið um að bera virðingu fyrir þeim minjum sem eru að finna. Gönguleið er stikuð alla leið en hafa ber í huga að víða er erfið yfirferð við skurði og mýrar á leiðinni. Gönguleið á milli Borg á Mýrum-Einkunnir hefur upp á að bjóða stórkostlegt útsýni yfir Hafnarfjall og Borgarnes ásamt því fallega lífríki sem er að finna á leiðinni.