Fara í efni

Hornstrandir: Hesteyri - Hlöðuvík

Hesteyri - Kjaransvík - Hlöðuvík, um Kjaransvíkurskarð

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vestfirðir, Ísafjarðarbær
Upphafspunktur
Hesteyri
Erfiðleikastig
Þrep 3 - Krefjandi leið
1 2 3 4
Merkingar
Vörðuð leið með hlöðnum steinum
Tímalengd
6 - 10 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hættur
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Sterkir straumar - s.s á, sjór eða vötn
  • Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
  • Engin þjónusta
  • Landvarsla
  • Tjaldsvæði
Tjaldsvæði og salernisaðstaða við upphaf og lok gönguleiðarinnar
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Snjóþung fram í júní. Aðgengileg júní - september.
Frá Hesteyri er gengin vörðuð leið inn Hesteyrarbrúnir og að Kjaransvíkurskarði (426m). Niður úr skarðinu er áfram vörðuð leið niður í fjöru Kjaransvíkur. Þar er Kjaransvíkurá þveruð og haldið áfram í fjörunni fyrir Álfsfell og yfir í Hlöðuvík.