Fara í efni

Rauðhóll gönguleið

Rauðhóls gönguleið er ein af 35 gönguleiðum sem settar hafa verið upp á gönguleiðabækling fyrir þjóðgarð Snæfellsjökuls.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Snæfellsnes
Upphafspunktur
N64°52.1638 W023°52.8236
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Þýft
  • Votlendi
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hættur
Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
Landvarsla
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Leið opin 12 mánuði ársins en bent er á að leið gæti verið hál vegna ísingar yfir vetrartímann og þegar aurbleyta er frá mars til maí.
Frá Rauðhóli rann Prestahraun í sjó fram, allt frá Hellisandi til Skarðsvíkur. Stikuð leið liggur frá bílastæði við Eysteinsdalsveg á Rauðhól en á gönguleið er gengið innan um hrauntröð, ásamt graslendi en einnig er að finna fallegar tjarnir sem myndast hafa. Rauðhóll er á verndarsvæði Umhverfisstofnunar Íslands og hafa ber í huga að forðast utanstígsgöngu, til að vernda svæðið við troðningi. Rauðhóls gönguleið er ein af 35 gönguleiðum sem settar hafa verið upp á gönguleiðabækling fyrir þjóðgarð Snæfellsjökuls og er þar hægt að finna upplýsingar um km lengd gönguleiðar, tímalengd gönguleiðar og upplýsingar um merkingar á gönguleið. Við göngu upp Rauðhól er útsýni niður í Öndverðarnes og Saxhól ásamt nálægð við Snæfellsjökul er mikið og útsýni yfir nærsveitir einnig gríðarlegt.