Fara í efni

Síldarmannagötur

Gömul þjóðleið með gullfallegt útsýni yfir Skorradal og Hvalfjörð.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Skorradalshreppur
Upphafspunktur
N64°28.4501 W021°19.1845
Erfiðleikastig
Þrep 3 - Krefjandi leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
  • Vörðuð leið með hlöðnum steinum
Tímalengd
4 - 6 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Stórgrýtt
  • Votlendi
  • Blandað yfirborð
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
  • Sterkir straumar - s.s á, sjór eða vötn
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Óráðlegt að fara leiðina frá nóv. til maí vegna veðra, snjólaga eða aurbleytu.
Síldarmannagötur er gömul þjóðleið sem er á verndarsvæði í byggð hjá Skorradalshreppi, sem liður í því að halda til haga alfaraleiðum fyrri tíma. Hægt er að byrja göngu við Vatnshorn inn í Skorradal en einnig við vörðu, innst í Hvalfirði. Síldarmannagötur, sem liggur á milli Skorradals og Hvalfjarðar, er vinsæl útivistarleið sem breiður markhópur nýtur. Vörður og stikur eru á milli upphafs/enda leiðar. Fara þarf yfir Blákeggsá tvisvar sinnum á leiðinni og er undirlag gönguleiðar mismunandi, allt frá smá grjóti að moldar undirlagi. Sjálfboðaliðar hafa verið dugleg við að viðhalda merkingum á leiðinni til að aðstoða göngufólk á leiðinni og er útsýni yfir Skorradal, Hvalfjörð, Botnsúlur og jökla á leiðinni stórkostlegt. Síldarmannagötur eru og verða ein vinsælasta útivistarleið á Vesturlandi og er mikilvægt að viðhalda henni og útdeila upplýsingum um hana.