Fara í efni

Búast má við vetraraðstæðum á hálendinu

Vert er að minna ferðaþjónustuaðila á að upp er runninn sá tími sem gera má ráð fyrir vetraraðstæðum á hálendinu.

Þannig hefur staðan einmitt verið síðustu daga nokkuð borið á að ferðafólk leggi í hálendisferð á vanbúnum bílum, t.d. jepplingum á sumardekkjum. Hafa bæði ferðamenn á einkabílum og rútur verið að festast við hinar ýmsu aðstæður. Mikilvægt er að bílaleigur upplýsi viðskiptavini sína um þetta og útbúi bíla sem ætlaðir eru til hálendisaksturs með viðeigandi hætti.

Þá fer líka að koma tími fyrir ferðaþjónustuaðila að setja mannbroddana í hópferðabílana svo að þeir séu tilbúnir þegar að því kemur að þeirra sé þörf.

Meðfylgjandi myndir voru teknar síðustu daga.