Farþegar um Keflavíkurflugvöll 2010
04.01.2011
Flugstöð
Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 1,8 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári. Þetta er um 8% fjölgun á milli ára.
Alls voru farþegar 1.791.637 á árinu 2010, samanborið við 1.658.409 farþega árið 2009. Hlutfallslega meiri aukning varð í umferð áfram- og skiptifarþega (transit) en meðal þeirra sem voru á leið til og frá landinu. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir desember en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá mun heildarfjöldi gesta til landsins í fyrra jafnframt liggja fyrir. Nánari skiptingu á farþegum um Keflavíkurflugvöll má sjá í meðfylgjandi töflu.
Des. 10 | YTD | Des 2009 | YTD | Mán. % breyting | YTD breyting | |
Héðan: | 37.064 | 717.921 | 33.164 | 706.027 | 11,76% | 1,68% |
Hingað: | 46.394 | 743.046 | 41.139 | 714.682 | 12,77% | 3,97% |
Áfram: | 2.700 | 23.854 | 3.276 | 47.020 | -17,58% | -49,27% |
Skipti. | 17.479 | 306.322 | 13.525 | 190.680 | 29,23% | 60,65% |
103.637 | 1.791.143 | 91.104 | 1.658.409 | 13,76% | 8,00% |