Farþegar um Keflavíkurflugvöll í september
Rúmlega 141 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í septembermánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta eru 17,9% færri farþegar en í september 2008.
Frá áramótum hafa rúmlega 1,3 milljónir farþegar farið um völlinn en til samanburðar þá voru þeir tæplega 1,7 milljónir á sama tímabili í fyrra, sem er 19,3% fækkun, eins og sjá má í töflunni hér fyrir neðan. Líkt og verið hefur aðra mánuði ársins má búast við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir september og verða þær birtar eftir helgina. Í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur þetta betur í ljós.
Sept. 09. |
YTD |
Sept.08. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting | |
Héðan: | 62.355 | 579.245 |
77.166 |
731.154 |
-19,19% |
-20,78% |
Hingað: | 54.916 | 580.520 |
71.468 |
735.928 |
-23,16% |
-21,12% |
Áfram: | 4.127 | 37.653 |
4.627 |
26.616 |
-10,81% |
41,47% |
Skipti. | 19.922 | 148.220 |
18.825 |
172.650 |
5,83% |
-14,15% |
141.320 | 1.345.638 | 172.086 | 1.666.348 |
-17,88% |
-19,25% |