Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgar áfram
07.11.2006
Flugstöð
Í október síðastliðnum fóru rúmlega 170 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll, samkvæmt tölum frá flugvellinum, samanborið við tæplega 148 þúsund í október í fyrra. Fjölgunin nemur 15%.
Fjölgunin í október er í takt við þróun farþegafjölda fyrir árið í heild en frá áramótum hefur farþegum fjölgað um 10,66%. Tölurnar eru greindar niður eftir því hvort farþegar eru á leið til landsins, frá landinu eða hvort um áfram- og skiptifarþega (transit) er að ræða. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.
Okt.06. | YTD | Okt.05. | YTD | Mán. % breyting | YTD % Breyting | |
Héðan: |
71.740 |
760.160 |
60.617 |
662.689 |
18,35% |
14,71% |
Hingað: |
72.202 |
756.743 |
62.199 |
661.392 |
16,08% |
14,42% |
Áfram: |
2.900 |
28.205 |
1.660 |
12.287 |
74,70% |
129,55% |
Skipti. |
23.181 |
224.058 |
23.257 |
262.359 |
-0,33% |
-14,60% |
|
170.023 |
1.769.166 |
147.733 |
1.598.727 |
15,09% |
10,66% |