Upptaka frá "Er komið nóg af gestum?"
Nú er aðgengileg upptaka frá örráðstefnunni "Er komið nóg af gestum? Þolmörk, fjöldatakmörk og gjaldheimta" sem haldin var í hátíðarsal Háskóla Íslands, mánudaginn 10 desember.
Samhliða fjölgun ferðamanna hefur tekið að bera á áhyggjum ferðaþjónustuaðila, sem og annarra, að of geyst sé farið. Landeigendur loka aðgengi, gjaldheimta er rædd, furðufréttir berast af ferðafólki, skattheimta er aukin og pirrings farið að gæta í garð gesta á ýmsum áfangastöðum. Á þessari örráðstefnu verður lagt mat á þessi einkenni óþols gagnvart greininni og hvort hafa beri af þeim áhyggjur, og ef svo; hvað er þá hægt að gera. Fundurinn hefst á örfáum aðfararorðum um tilefni og tilurð fundarins. Þar á eftir mun fræðafólk stíga á stokk og í stuttum 5 mínútna glærulausum erindum fjalla um eftirfarandi dæmi. Að því loknu verður opnað fyrir umræður og spurningar og eru aðilar úr greininni sem og fjölmiðlafólk sérstaklega hvatt til að mæta í þágu hreinskiptinnar og opinnar umræðu.
Stofnun | Dæmi | |
Dr. Edward H. Huijbens | Rannsóknamiðstöð ferðamála | Furðufréttir af ferðafólki |
Dr. Þorvarður Árnason | Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði | DisnEY eða Ísland öðru nafni |
Dr. Katrín Anna Lund og Dr. Gunnar Þór Jóhannesson | Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands | Gestalistinn |
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir | Ferðamáladeild Háskólans á Hólum | Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir! |
Dr. Ólafur Rastrick | Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands | Útlendingar og arfurinn |
Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við Edward H. Huijbens, Rannsóknamiðstöð ferðamála, edward@unak.is.