Er þinn gististaður tilbúinn að taka á móti gestum í sóttkví? - Skráning og reglur
16.08.2020
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Eins og flestum er kunnugt þá þurfa allir sem koma til landsins frá og með 19. ágúst að fara í tvöfalda skimun og 5-6 daga sóttkví. Þeir gististaðir sem eru tilbúnir að taka á móti gestum sem þurfa að fara í sóttkví geta skráð sig hér að neðan.
Leiðbeiningar fyrir gististaði sem þjónusta gesti í sóttkví
- Rekstraraðili þarf að þekkja þær reglur sem gilda hér á landi um Covid-19 og vera tilbúinn að leiðbeina sínum gestum.
- Herbergi sem ætluð eru gestum í sóttkví þurfa að vera aðskilin frá herbergjum þar sem aðrir gestir sem ekki eru í sóttkví dvelja. T.d. í sér álmu, á hæðum eða stakstæð t.d. lítil gestahús.
- Hvert og eitt herbergi þarf að vera með sér baðherbergi og salerni.
- Tryggja þarf að nægar birgðir séu á herberginu fyrir gesti til a.m.k. fimm daga s.s. af handklæðum. salernispappír og sápu.
- Upplýsingar um sóttkví og COVID-19 þurfa að vera aðgengilegar gestum.
Sjá covid.is, landlaeknir.is og ferdamalastofa.is/covid - Öll þjónusta fer fram við herbergisdyr s.s. afhending á mat.
Starfsfólk má ekki fara inn í herbergi gesta og starfsfólk skilur nauðsynjar eftir við herbergishurð. - Upplýsingar um helstu þjónustu sem gestir geta fengið þurfa að vera inn á herberginu s.s morgunverðarþjónusta, matseðlar fyrir aðrar veitingar, veitingastaðir í nágrenni sem eru með heimsendingu, verslanir með heimsendingu og þess háttar.
- Starfsfólk gististaðar þarf að vera tilbúið að sækja t.d. lyf fyrir gesti sem eru í sóttkví.
- Gististaður er ekki ábyrgur fyrir hegðun gesta. Ef grunur leikur á að gestur sé að brjóta sóttkvíarreglur hafið þá samband við lögreglu.
- Gististaður þarf að liðsinna gestum við að panta tíma í seinni skimun á næstu heilsugæslustöð og leiðbeina gestum um hvar sú stöð er og hvernig best má komast þangað (panta leigubíl ef þarf). Sjá lista yfir skimunarstaði hér.
- Gestir eru ábyrgir fyrir greiðslu á allri þjónustu sem þeim er veitt.
- Nánari upplýsingar um sóttvarnarhús/gististað er að finna hér. (verður uppfært 17. ágúst)
Hvað mega gestir gera í sóttkví?
- Gestir eiga að halda sig sem mest í sínu herbergi.
- Gestir mega fara út í göngu en þurfa að tryggja 2. metra regluna og mega ekki staldra við á sameiginlegum svæðum gististaðarins.
- Ef gestir hafa bíl til umráða þá mega þeir fara í ökuferð en mega ekki fara í skoðunarferðir á fjölmennum ferðamannastöðum og ekki nota almenningssalerni.
- Sjá frekari upplýsingar í meðfylgjandi leiðbeiningum.
Hvað ef upp kemur smit?
Í þessum tveimur skjölum hé að neðan er farið yfir viðbragðsáætlun vegna sýkinga
- Móttaka ferðamanna á gististöðum - Viðbragðsáætlun vegna sýkinga o.fl. (Íslenska og enska)
- Leiðbeiningar til starfsfólks í framlínu (sjá sérstaklega bls. 6)