Fara í efni

Erlendir ferðaþjónustuaðilar með starfsemi á Íslandi - Upplýsingarit

Út er komið upplýsingarit þar sem farið er yfir þær kröfur sem gerðar eru til erlenda ferðaþjónustuaðila sem koma með ferðahópa til Íslands án þess að opna starfsstöð hér á landi. Verkefnið var unnið af Ferðamálastofu ásamt Vinnumálastofnun og Samgöngustofu til þess að skýra þær kröfur sem gerðar eru til erlenda ferðaþjónustuaðila á Íslandi.

Ferðaþjónustuaðilar utan Íslands

Meðal annars er farið yfir þær reglur sem gilda um leyfismál og muninn á milli þeirra sem eru utan eða innan EES/ESB svæðisins. Ítrekað er að allir sem koma með ferðahópa hingað til lands er skylt til að útbúa skriflega öryggisáætlun fyrir hverja tegund ferðar.

Starfsmenn ferðaþjónustuaðila utan Íslands

Þá er farið yfir þær reglur sem gilda um starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækja utan Íslands, hvernig skráningu þeirra hérlendis þarf að vera háttað o.fl.

Rekstrarleyfi til farþegaflutninga á Íslandi

Loks eru upplýsingar um þær reglur sem gilda um rekstrareyfi til farþegaflutninga á Íslandi eftir stærð og gerð ökutækja.

Upplýsingarnar er hægt að nálgast hér á vefnum bæði á íslensku og ensku og einnig í PDF-útgáfu á báðum tungumálum.

PDF-íslenska     PDF-enska