Fara í efni

Ferðamálaskýrsla OECD 2024: Áhugaverð gögn um samanburð á milli landa

Ferðamálaskýrsla OECD 2024: Áhugaverð gögn um samanburð á milli landa

Um mitt ár kom út fyrri hluti skýrslu sem OECD gefur út annað hvert ár og inniheldur helstu tölfræði og lýsingu á tilhögun ferðamála í öllum OECD löndunum. Skýrslan nefnist OECD Tourism Trends & Policies 2024. Nú hefur verið bætt við skýrsluna þeim sem hluta sem er að mörgu leyti áhugaverðastur, þ.e. sérköflum um hvert og eitt land, þar með talið Ísland.

 

Skýrslan er mikil að vöxtum og er hennar jafnan beðið með nokkurri eftirvæntingu en samanburðurinn sem hún býður upp á getur nýst með ýmsum hætti. Að því leyti eru kaflarnir um hvert og eitt land gagnlegastir.

 

Nauðsyn heildstæðrar stefnumótunar með sjálfbærni að leiðarljósi

Í fyrsta kafla skýrslunnar er horft almennt til þróunarinnar á síðustu tveimur árum og mat lagt á hvert stefnir. Kastljósinu er sérstaklega beint að nauðsyn heildstæðrar stefnumótunar og þess mikilvægis sem ferðaþjónusta hefur fyrir efnahagslíf landa.

Tveir þemakaflar

Þá eru í skýrslunni tveir þemakaflar þar sem eru að þessu sinni er fjallað um um vinnuafl í ferðaþjónustu og sjálfbærnimælikvarða. Í þeim eru til dæmis tekin „best practice“ dæmi frá OECD löndunum, sem áhugavert er að lesa um.


Sérkafli um Ísland

Hvert land á sem fyrr segir sinn kafla í skýrslunni og í vefútgáfu hennar er hægt að fara beint á kaflann um Ísland. Auk tölfræði og gunnupplýsinga um ferðaþjónustuna er í skýrslunni sagt frá ýmsu af því sem verið er að gera hér á landi á vegum stjórnvalda hvað varðar stefnumótun og skipulag greinarinnar.

 

Opna skýrslu OECD 2024