Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki
28.12.2013
© arctic-images.com
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2014. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2014.
Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum
- Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
- Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
- Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.
Áherslur og ábendingar til umsækjenda
- Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
- Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
- Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
- Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða Framkvæmdasjóðsins og Ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis ofl
Áður en sótt er um:
Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er nauðsynlegt að kynna sér neðangreint efni:
- Menningarstefna í Mannvirkjagerð
- Ný Skipulagslög nr. 123/2010
- „Góðir staðir“ - leiðbeiningarrit um uppbyggingu ferðamannastaða
- Aðgengi fyrir alla bæklingurinn
- Handbók um merkingar (PDF 8,6 MB)
- Matsblað fyrir styrkumsóknir
Allar umsóknir skulu innihalda:
a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti.
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá
verður
deiliskipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
deiliskipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunarvinnu eða undirbúningsrannsókna
þá verður að
fylgja skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
fylgja skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila.
Námskeið fyrir umsækjendur
Sérstaklega er vert að vekja athygli umsækjenda á því að nú er boðið upp á námskeið sem hafa að markmiði að leiðbeina umsækjendum í gegnum umsóknarferlið. Námskeiðin verða haldin hjá Ferðamálastofu, Geirsgötu 9 í Reykjavík og Strandgötu 29 Akureyri.
- Reykjavík 9. janúar kl. 13-15
- Akureyri 10. janúar kl. 13-15
Umsóknarferlið
Umsóknir um styrki í sjóðinn fara í gegnum umsóknakerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Þegar umsækjendur hafa skráð sig inn eru þeir leiddir í gegnum umsóknarferlið.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2014 og umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Björn Jóhannsson umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með vefpósti bjorn@ferdamalastofa.is