Guðrún Helgadóttir deildarstjóri ferðamáladeildar Háskólans á Hólum
07.05.2009
Guðrún Helgadóttir
Þann 1. maí tók Guðrún Helgadóttir prófessor við starfi deildarstjóra ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og mun gegna því til 30. apríl að ári. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, sem verið hefur deildarstjóri frá stofnun deildarinnar árið 1996 er nú í barneignarleyfi. Guðrún Helgadóttir hefur starfað við ferðamáladeild frá fyrstu tíð og verið staðgengill deildarstjóra um árabil. Því segir hún ef til vill ofmælt að hún sé nýr deildarstjóri.