Fara í efni

Handbók til sveitarfélaga um uppbyggingu ferðamannastaða

Í samráði við Ferðamálastofu vann Markaðsstofa Suðurlands handbók sem á að auðvelda sveitarfélögum í stefnumótun, ákvörðunum og aðgerðum við uppbyggingu ferðamannastaða.

 

Hvert er hlutverk sveitarfélaga við uppbyggingu áfangastaða?

Sveitarfélög koma oft að þróun, leyfisveitingum og framkvæmdum við ferðamannastaði en stundum leikur vafi á atriðum varðandi ábyrgð, rekstur og framtíðarsýn um staðina. Þá hefur þótt vanta forsendur og verkferla við ákvarðanatöku. Í handbókinni er leitast við að aðstoða sveitarfélög í að meta hvert hlutverk þeirra er í uppbyggingu áfangastaða, hver hagur þeirra er af ferðamannastöðum og til hvaða þátta þarf að líta í allri ákvarðanatöku.

 

Byggir á reynslusögum um allt land

Handbókin byggir á samtölum við sveitarfélög og stofnanir um allt land þar sem skoðaðar voru helstu orsakir vandamála og hvaða aðgerðir leiddu til jákvæðrar reynslu. Á milli kafla má finna dæmisögur af stöðum þar sem uppbygging þykir hafa gengið vel.

 

Listi yfir gagnlegt efni um uppbyggingu áfangastaða

Ýmis góð rit hafa verið gefin út um ólíka þætti sem lúta að uppbyggingu ferðamannastaða. Í 10.kafla má finna tengla á helstu gögn sem nýtast á ólíkum stigum verkefna.

 

Endurskoðuð og uppfærð í ljósi reynslunnar

Handbókin er eingöngu gefin út á rafrænu formi. Hún verður endurskoðuð og uppfærð þegar reynsla er komin á hana og ábendingar má senda til Markaðsstofu Suðurlands.

Opna handbók