Lögfræðingur á Akureyri - Afleysing
07.02.2023
Ferðamálastofa óskar eftir að ráða lögfræðing í 100% starf í eitt ár á stjórnsýslu- og umhverfissvið stofnunarinnar á Akureyri
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnsýsluleg meðferð mála
- Afgreiðsla stjórnsýsluerinda, umsagna og álitsgerða
- Ýmis lögfræðileg úrlausnarefni
Hæfniskröfur
- Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði
- Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu og málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga kostur
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Mjög góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti
- Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu norðurlandamáli æskileg
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
- Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt mynd og kynningarbréf. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum.
- Um er að ræða afleysingu til 12 mánaða. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 15. mars nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi
- Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði.
- Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
- Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
- Starfshlutfall er 100%
- Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helena Þuríður Karlsdóttir, Forstöðumaður - helena@ferdamalastofa.is
Elín Gróa Karlsdóttir, Fjármálastjóri - elin.groa.karlsdottir@ferdamalastofa.is