Milljarðahagsmunir en lítið gegnsæi
Þókunargjöld íslenskra gististaða til erlendra bókunarþjónusta nema milljörðum á hverju ári. Lítið gegnsæi og refsingar sem gististaðir eru beittir er meðal þess sem vekur athygli í nýrri rannsókn á þætti bókunarfyrirtækja í rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar. Fyrstu niðurstöður voru kynntar í dag á fundi sem Ferðamálastofa stóð fyrir í samvinnu við Íslenska Ferðaklasann.
Rannsóknin var unnin á vegum Ferðamálastofu af Rannsóknasetri verslunarinnar og niðurstöðurnar kynntu Árni Sverrir Hafsteinsson og Aron Valgeir Gunnlaugsson.
Milljarðar í þókunargjöld
Ferðaþjónustuaðilar á Íslandi, líkt og á heimsvísu, selja stóran hluta afurða sinna í gegn um bókunarþjónustur (e. Online Travel Agencies, OTAs). Nær allir gististaðir hérlendis nýta bókunarþjónustur að einhverju marki þó hlutfallið sé ólíkt á milli gististaða. Þá eru viðhorf rekstraraðila gististaða til bókunarþjónusta einnig mjög ólík. Stöðluð þóknunargjöld bókunarþjónusta í gististarfsemi liggja á bilinu 15% og upp í 20%, þó dæmi séu um að stærstu hótelkeðjur njóti betri kjara. Um er að ræða töluverða hagsmuni fyrir íslenska ferðaþjónustu en þóknunargjöld gististaða til bókunarþjónusta nema milljörðum á hverju ári.
Refsingar fyrir að bjóða lægra veð
Lágmarksverðkvaðir (e. Price Parity Clauses) eru í samningum á milli gististaða og bókunarþjónusta og kveða á um að ekki megi bjóða lægra verð annarsstaðar en hjá bókunarþjónustunni. Gististöðum hefur verið refsað fyrir að brjóta lágmarksverðkvaðir, meðal annars í sýnileika í leitarniðustöðum.
Lítið gegnsæi
Lítið gegnsæi er í þeim algrímum sem bókunarþjónustur nýta til að raða gististöðum í leitarniðurstöðum og taka því margir rekstraraðilar ekki eftir því ef gististað þeirra er refsað. Á sama máta og gististaðir kappkosta að vera sem sýnilegastir á bókunarsíðunum, kappkosta bókunarsíðurnar að vera sem sýnilegastar í leitarvélum á netinu. Af þessum sökum hafa bókunarþjónustur gríðarlegan kostnað af leitarvélabestun og kaupum á leitarorðum á leitarvélum eins og Google.
Efni og upptökur
Nálgast má efni og upptökur frá fundinum í dag hér að neðan.
Næstu kynningar
Næsta hádegiskynning sem Ferðamálstofa mun standa fyrir í samvinnu við Íslenska ferðaklasann verður föstudaginn 5. apríl næstkomandi. Þá verða kynntar niðurstöður um starfsánægju í ferðaþjónustu. Það er talið að geti nýst sem þáttur við mat á árangi atvinnugreinarinnar, nánar tiltekið þess markmiðs sem sett er fram í Vegvísi í ferðaþjónustu um jákvætt viðhorf til greinarinnar. Verkefnið er unnið af Ferðamálastofu í samvinnu við Vinnueftirlitið með aðkomu Markaðs- og miðlarannsókna ehf.