Fara í efni

Opið fyrir umsóknir um styrki vegna samstarfs við Grænland og Færeyjar

Opið fyrir umsóknir um styrki vegna samstarfs við Grænland og Færeyjar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Umsóknafrestur vegna næstu úthlutunar rennur út á miðnætti 2. september 2024. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Hvers konar verkefni eru styrkt?

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk. Skulu verkefnin fela í sér samstarf milli aðila í tveimur af löndunum þremur hið minnsta.

Dæmi um verkefni sem NATA styrkir eru:

  • Nýsköpunar- og vöruþróunarverkefni
  • Sameiginleg markaðssetningarverkefni
  • Þekkingarheimsóknir og miðlun gagnkvæmrar reynslu
  • Gæða- og umhverfismál innan ferðaþjónustunnar

Stjórn NATA mun árið 2024 líta sérstaklega til umsókna þar sem áhersla er á sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu.

Tveir flokkar styrkja

Styrkir frá NATA er veittir bæði vegna viðskiptatengdra verkefna og menningarverkefna. Styrkirnir eru tvennskonar: 

  1. Þróunar- og markaðsverkefni í ferðaþjónustu
  2. Ferðakostnaður vegna kynnis- og námsferða

1. Þróunar- og markaðsverkefni í ferðaþjónustu

Við mat umsókna er m.a. litið til eftirfarandi þátta:

  • Hugmynd og gæði umsóknarinnar. Mikilvægt er að vanda  útfyllingu umsókna þar sem ófullgerð eyðublöð verða ekki tekin til greina
  • Nauðsynleg fjármögnun og hvernig er annarri fjármögnun háttað
  • Þróun ferðaþjónustu
  • Samstarf milli landanna
  • Markaðslegir möguleikar
  • Nýsköpunargildi
  • Samfélags- og sjálfbærniþættir

Hámarksstyrkur verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar. Styrkurinn er ekki fyrir launakostnaði eða þóknun ráðgjafa.

2. Ferðakostnaður - Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða vegna t.d.

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Við mat á umsóknum er m.a. litið til eftirfarandi þátta:

  • Tilgangur ferðarinnar
  • Gæði umsóknarinnar. Mikilvægt er að vanda útfyllingu umsókna þar sem ófullgerð eyðublöð verða ekki tekin til greina
  • Áhersla á menningarleg samskipti – t.d. að gista hjá fjölskyldum á staðnum í stað þess að nota hótel
  • Nauðsynleg fjármögnun og hvernig er annarri fjármögnun háttað

Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 2.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og 1.000 danskar krónur vegna ferða á milli Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem, ásamt ítarlegri upplýsingum, má finna á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 2. september 2024. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 4. október 2024. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 4. október 2024 eru ekki styrkhæf.

Næsti umsóknarfrestur 

Um er að ræða seinni úthlutun af tveimur á árinu 2024. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar 2025 verði í janúar/febrúar 2025 en það verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Erla Weihe Johannesen – nata@vinnuframi.fo

Upplýsingar um fyrri úthlutanir NATA má sjá á hér.