Samdráttur í uppfærðri gervigreindarspá um fjölda erlendra farþega til 2028

Fyrstu tveir mánuðir ársins valda niðursveiflu í spánni
Ferðamálastofa birtir nú uppfærslu á mánaðarlegri spá um fjölda erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll þar sem gervigreind er nýtt til spágerðarinnar. Þeim fækkaði um tæp 6% á fyrstu tveimur mánuðum ársins, miðað við sama tíma í fyrra, skv. talningu Ferðamálastofu. Algóriþmar gervigreindarspárinnar hafa þegar tekið þessa skörpu fækkun inn í myndina við mótun bestu spár fyrir næstu 36 mánuði. Það leiðir til mánaðarspár í þetta sinn um bæði fækkun frá síðustu spá í febrúar og samdrátt í heildarfjölda á milli ára 2025 og 2026.
Gervigreindarspá marsmánaðar 2025
Að neðan getur að líta uppfærslu marsmánaðar 2025 ásamt samtölum fyrir árin 2025 – 2027 og hlutfallslegri breytingu á milli ára skv. spánni:
Ath. Gildi fyrir janúar og febrúar 2025 eru rauntölur skv. brottfarartalningu Ferðamálastofu í Leifsstöð
Samanburður við febrúarspána
Taflan að neðan sýnir samanburð á gervigreindarspánni nú og í síðasta mánuði.
Spáð um næstu 36 mánuði á mánaðarfresti
Uppfærða spáin, sem birtist nú, er á mánaðagrunni fyrir 36 mánaða tímabil, frá og með mars 2025 til febrúarmánaðar 2028. Ný spá birtist í kringum 10. hvers mánaðar og eru spárnar hlaupandi, þannig að í apríl verður birt spá fyrir tímabilið apríl 2025 – mars 2028 og svo koll af kolli.
Gervigreindarspár um fjölda erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll
Gervigreindin er m.a. notuð til að afla upplýsinga um breytur sem nýst geta sem grunnur spágerðar, vinna úr þeim og greina, velja úr tugum spálíkana þau líkön sem sýna bestu sögulegu spágetuna og nýta styrkleika einstakra líkana til að hámarka nákvæmni spáa hverju sinni. Ráðgjafarfyrirtækið Sumo Analytics vinnur þessar spár fyrir Ferðamálastofu.
Nýtt mælaborð fyrir spár á vegum Ferðamálastofu
Ferðamálastofa hefur sett saman sérstakt mælaborð fyrir spár sem unnar eru á vegum stofnunarinnar. Í mælaborðinu geta notendur á einfaldan og myndrænan hátt nálgast allar helstu upplýsingar um spárnar.
Lýsing á aðferðafræði gervigreindarspáa
Lýsingu á aðferðafræði spágerðar um fjölda erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll með nýtingu gervigreindar má sjá hér. Nýting gervigreindar til spágerðar er tilraunverkefni hjá Ferðamálastofu og verður verkefnið endurmetið eftir því sem reynsla fæst af því.
Nánari upplýsingar
Jóhann Viðar Ívarsson, johann@ferdamalastofa.is