Samtal um aðgerðaáætlun ferðamála til 2030 - Fundir um allt land
13.02.2024
Mynd: Hvítserkur/©Markaðsstofa Norðurlands
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030.
Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og er dagskráin sem hér segir:
- 14. febrúar á Akureyri (Hof) kl. 14:00
- 15. febrúar á Sauðárkróki (Ljósheimar) kl. 15:00
- 21. febrúar á Suðurlandi (Hótel Hvolsvöllur) kl. 14:00
- 22. febrúar á Egilsstöðum (Hótel Hérað) kl. 14:00
- 27. febrúar í Borgarnesi (Landnámssetrið) kl.14:00
- 28. febrúar í Reykjavík kl. 15:00
- 4. mars á Vestfjörðum (Edinborgarhúsið) kl. 13:00
- 5. mars í Reykjanesbæ (Hljómahöll) kl. 13:00
- 6. mars á Höfn í Hornafirði (Nýheimar)
Drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Þau eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári.
Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!
Sjá nánar á ferdamalastefna.is