Skráning á World Travel Market 2006
Líkt og undanfarin ár tekur Ferðamálastofa þátt í World Travel Market ferðasýningunni í London. Íslenskum ferðaþjónustuaðilum býðst að fá aðstöðu í bás ráðsins gegn föstu gjaldi og nú er komið hér inn á vefinn skráningarblað fyrir sýninguna.
World Travel Market er ein stærsta ferðasýning í heimi og haldin árlega. Að þessu sinni fer hún fram dagana 6.-9. nóvember og er í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár. Sýningin er opin 2 daga fyrir ferðaþjónustuaðila ( trade) og 2 daga fyrir almenning. Ferðamálastofa sér um að útbúa básana og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína en síðan er undir hverjum og einum komið að nýta tækifærið sem best.
Skráningu lýkur 20. júlí.
Hér fyrir neðan er tengill á eyðublað til skráningar í íslenska sýningarbásinn á World Travel Market 2006 en vakin er athygli á því að skráningu lýkur 20. júlí. Einnig er tengill á heimasíðu sýningarinnar.
- Skráning á WTM 2006 (PDF-skjal)
- Heimasíða sýningarinnar
Nánari upplýsingar um sýningar í Bretlandi veitir Sigrún Hlín Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi sigrunh@icetourist.is Sími: 535 5500