Fara í efni

Sérstakrar varkárni þörf við Valahnúk og Brúna á milli heimsálfa

Lögreglan á Suðurnesjum vill vekja athygli almennings á að til staðar eru aðstæður sem kalla á sérstaka varkárni á tveimur vinsælum áfangastöðum á Reykjanesi.

 

Vara við ferðum að Valahnúk

Vegna nýrra sprungna í Valahnúk við Reykjanestá hefur verið ákveðið að vara við ferðum þangað þar til málið hefur verið metið af sérfræðingum og öðrum viðeigandi aðilum. Unnið er að því að meta öryggi svæðisins og verða frekari upplýsingar gefnar út eftir því sem málið þróast. Varað hefur verið við sprungum í Valahnúk síðan 2016. Valahnúkur er veikur móbergsstapi þar sem sífellt molnar úr brúnum og hefur gert í áratugi. Varúðarskilti er við upphaf göngustígs á hnúkinn og að auki er stígurinn lokaður með girðingu. Reykjanesbær hefur gert ráðstafanir til að auka í merkingar á staðnum vegna þessa. Sprungurnar má sjá á myndunum hér til hliðar.

 

Holumyndanir við Brúna á milli heimsálfa

Einnig er rétt að vara við jarðsigi eða holumyndun í nágrenni Brúarinnar milli heimsálfa, sjá mynd hér að neðan. Þær geta verið torfærar og hugsanlega erfiðar að greina, sérstaklega í slæmu skyggni. Ferðamönnum er því bent á að fara með gát og halda sig á merktum gönguleiðum á svæðinu.

 

Við minnum á að þessi tilkynning er sett fram í varúðarskyni og biðjum fólk um að sýna aðgát og virða merkingar og fyrirmæli á svæðinu.