Fræðslumyndbönd fyrir starfsfólk í upplýsingagjöf
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Fræðslumyndbönd fyrir starfsfólk í upplýsingagjöf |
Lýsing | Ferðamálastofa hefur útbúið stutt fræðslumyndbönd á ensku og íslensku fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva og aðra sem starfs síns vegna koma að upplýsingagjöf til ferðafólks. Til að byrja með eru birt 3 myndbönd sem fjalla m.a. um hvernig veita skal góða þjónustu, mismunandi menningarheima og almenna upplýsingagjöf. Þjónusta og samskipti - Áslaug BriemÁslaug Briem fer yfir helstu atriði varðandi þjónustu og samskipti við gesti okkar. Hún er verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu og vinnur við Vakann, gæða- og umhverfisvottunarkerfi ferðaþjónustunnar. Almenn upplýsingagjöf – Heimir HanssonHeimir Hansson stýrir Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði og hefur langa reynslu í upplýsingagjöf til ferðafólks. Hann fer hér yfir hvernig gagnagrunnur Ferðamálastofu yfir ferðaþjónustuaðila nýtist til að leita, með einföldum hætti, eftir gistingu, afþreyingu, menningu og annari þjónustu fyrir ferðafólk um allt land. Leiðin að hjarta gestsins - Margrét ReynisdóttirMargrét rekur ráðgjafarfyrirtækið Gerum betur og sérhæfir sig í fræðslu um þjónustu, þjónustugæði og mismunandi menningarheima. Öll myndböndin á einum stað
|
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Fræðslurit og handbækur |
Útgáfuár | 2019 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
Leitarorð | upplýsingamiðstöð, upplýsingamiðstöðvar, fræðsla, ráðgjöf, upplýsingagjöf, öryggi, upplýsingar |