Á ferðamálaþingi í október 2011 var meðal annars kynnt ritið „Góðir staðir“ sem er leiðbeiningarrit um uppbyggingu ferðamannastaða. Ritið er unnið í samstarfi Ferðamálastofu, Framkvæmdasýslu ríkisins og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Ritinu er ætlað að hjálpa ferðaþjónustuaðilum, forsvarsmönnum sveitarfélaga, félagasamtökum og öðrum framkvæmdaaðilum við skipulag og uppbyggingu áfangastaða ferðamanna. Áhersla er lögð á mikilvægi góðs undirbúnings og vandvirkni. Því er þannig ætlað að byggja brú á milli sveitarfélaga og ríkis annarsvegar og hönnuða og framkvæmdaaðila hinsvegar. Ritinu er einnig ætlað að vera hvatning til þeirra fjölmörgu aðila sem standa að uppbyggingu ferðamannastaða á Íslandi öllu að vanda til verka því enginn vafi leikur ´að náttúran og landið okkar eiga það skilið. |