Ísland komdu með - Hvatningarátak
Nánari upplýsingar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Titill | Ísland komdu með - Hvatningarátak | |||||||||||||||||||||||||||||||||||
Lýsing |
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson Vorið 2020 fór í gang nýtt átak, Ísland komdu með, þar sem Íslendingar voru hvattir til að ferðast innanlands og kaupa innlendar vörur og þjónustu. Umferð var beint inn á vefinn www.ferdalag.is þar sem nálgast má upplýsingar um þá fjölbreyttu þjónustu sem í boði er um allt land. Allt efni var hugsað þannig að það nýtist fyrir alla landshluta og að aðilar í ferðaþjónustu og aðrir geti auðveldlega nýtt það í sínu eigin markaðsefni og aðgerðum. Mikilvægt var að undirbúa okkur vel til að hámarka áhrif átaksins í sameiningu. Kynningarbréf til ferðaþjónustuaðila Efni til notkunarHér má finna efni sem ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt í tengslum við átakið Komdu með.! Merki fyrir Komdu með átakið bæði fyrir prent- og skjámiðlaValfrjálst er að nota bláa litinn, gula, rauða eða alla í bland. Lykilorðin hér eru hressleiki og litagleði.
Rammar fyrir færslur á samfélgasmiðlaRammar í öllum helstu stærðum fyrir samfélagsmiðla. Bæði hreinir rammar og eins rammar merktir átakinu.
Merki fyrir Ferðagjöf bæði fyrir prent- og skjámiðla
LitagildiFerðagjöf - kynning fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Kynningarmyndband
Efni frá kynningarfundi 26. maí
Efni frá kynningarfundi 27. apríl
Hvernig laða ég Íslendinga að?Nú þegar fyrirséð er að Íslendingar verða í meirihluta ferðamanna í sumar er vert að ferðaþjónustan velti fyrir hvernig best er að þjóna þessum hópi. Hér að neðan nokkrar ábendingar sem vert er að hafa í huga:
Hvað er tilboð?Hver þiggur ekki gott tilboð? Tilboð geta verið margskonar og mikilvægt að hafa hugfast að þau þurfa alls ekki að vera í formi verðtilboða. Mikilvægast er að hvetja til viðbótarsölu. M.ö.o. að veita ekki afslátt af grunnverði heldur að leggja sig fram um að fá gesti til að stoppa lengur, borða oftar, gera meira á svæðinu og þannig auka tekjur. Mikilvægt er að muna að sé þjónusta seld sem pakkaferð þarf ferðaskrifstofuleyfi. |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Ímynd og markaðsmál |
Útgáfuár | 2020 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
Leitarorð | ferðagöf, ferðagjöfin, átak, innanlandsátak, komdu með |