Lýsing |
Í þessari skýrslu eru birtar niðurstöður símakönnunar meðal íbúa á Höfn, Mývatnssveit og Siglufirði um viðhorf þeirra til ferðaþjónustu og ferðamennsku. Sú rannsókn var hluti af stærri rannsókn á áhrifum ferðaþjónustu og ferðamennsku á einstök samfélög hér á landi. Rannsóknin tók til þeirra mögulegu áhrifa sem stafa af ferðamennsku á tilteknu svæði þar sem skoðað var hvernig íbúar upplifa áhrif aukinnar ferðaþjónustu og ferðamennsku á samfélag og daglegt líf. Rannsókninni var skipt í tvo hluta; í fyrri hlutanum voru tekin hálfopin viðtöl við íbúa á stöðunum þremur og í síðari hlutanum var spurningalisti lagður fyrir íbúa í símakönnun. Heildarniðurstöður rannsóknarinnar ásamt mati á samfélagslegum áhrifum og samanburði milli svæða er að finna í skýrslunni Greining á áhrifum ferðaþjónustu og ferðamennsku í einstökum samfélögum: Höfn, Mývatnssveit og Siglufjörður (Eyrún Jenný Bjarnadóttir, Arnar Þór Jóhannesson og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, 2016). Sá hluti niðurstaðnanna sem birtist hér í þessari skýrslu eru svör íbúa á svæðunum þremur við spurningum símakönnunar. Niðurstöður úr hverri spurningu könnunarinnar eru settar fram í töflum fyrir hvert svæði með greiningu eftir skilgreindum bakgrunnsbreytum. |